Spector

Spectorinn ætlast til þess að gestir síðunar kvittti fyrir komu sína, annaðhvort í Bókina sem sérstaklega er ætluð fyrir gesti eða í skoðanir!

Verið þið stillt

Auglýsing

Spjallkubbur

..Augnablik

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Lifandi

18. maí 2007 klukkan 01:00
Spector er lifandi, hvað er að frétta?


eigum við að taka eitt djöfull gott punktablogg í dag? Komið fram á miðja nótt og vinna á morgun!



  • Spector hefur fengið vinnu hjá DHL, agalega nettur bílstjóri sem keyrir út pakka til þjóðfélagsenda vítt og breitt um borgina
  • Spector kláraði prófin í síðustu viku, fær einkunnir á morgun
  • Spector og Lunds gerðu sér ferð í Hrísateiginn í gærkveldi, skemmtum við okkur konunglega og svaf ég ósköp vært í leisí boji
  • Lunds svaf ekki eins vært, súrefnisþjófurinn hann Safir stal sænginni af Lunds og var honum því hrollkalt það sem eftir lifði nætur
  • Keflavík spilaði við KR síðasta mánudag, lokatölur leiksins voru Keflvíkingum afar hagstæðar því þeir höfðu sett 2 mörk gegn einu marki KR-inga
  • Leikur hjá Keflavík á sunnudaginn gegn ríkjandi meisturum í FH, án vafa stórleikur sem sýndur verður beint í besta sætinu, SÝN
  • 2.flokkur á fyrsta leik á þriðjudaginn næst komandi á móti Fjölni
  • Egilsstaðir, ekki laust við að Spector sakni þeirra örlítið núna
  • Sólin fer líklega í áskrift þangað á næstunni
  • En gott í bili
  • Farinn að sofa
  • Tala við ykkur seinna
  • Bless




  • P.S. Ár liðið frá því að Pétur heitinn týndist og skildi við okkur, við hugsum til þín vinur!
Spector

Ísland er land mitt....

28. janúar 2007 klukkan 22:37
Já fólk...

Spector hefur einsog aðrir landsmenn setið límdur fyrir framan sjónvarpsskjáinn á meðan Ísland hefur spilað leiki sína á HM í þýskalandi. Auðvitað er maður að rifna úr stolti þegar þeir vinna og komast áfram, en að sama skapi alveg brjálaður þegar þeir drulla á sig, upp að herðablöðum!

Annars hafa þessi grey nú staðið sig ágætlega það sem af er, ef leikurinn við úkraínu er tekinn út!
Reyndar fannst mér það svolítið einkennilegt að við skyldum tapa fyrir innfluttu vinnuafli!
við erum að flytja þetta ágætis fólk hingað til landsins til að vinna þá vinnu sem við nennum ekki að vinna, erum svo ægilega góð með okkur hérna á klakanum og hraunum yfir þetta "láglauna fólk sem vinnur skítavinnuna" fyrir okkur. Ég allavega var ekkert sár þó að við skyldum tapa fyrir Pólverjum, og fannst þeir bara eiga það fullkomlega skilið! Nú hafa þeir allavega eitthvað til að draga fram úr erminni þegar frystihús stjórinn kemur kol snar klikkaður og hótar að reka þau, jú þau hrauna bara yfir hann með úrslitum úr handbolta! það er fínt!
Aftur að Íslenska liðinu, Alexander Petterson....minn maður númer eitt tvö og þrjú! Barátta og sigurvilji er eitthvað sem ég heillast að...nokkrir þarna sem mættu taka það til sín! En ekki margir;)

Annars er Spector bara sæmilega hress, skellti sér í skemmtiferð í borgina á fimmtudaginn síðasta. Lét krafla úr varahluti úr mjöðminni og skella þeim með í hendina. Hafði Spector svo gaman af að hann ákvað að vera bara á spítalanum yfir nótt. Eignaðist Spector fullt af vinum þarna á spítalanum, hjúkkurnar slógust um að fá að þjóna Spector og fékk hann að vafra um eldhúsið að vild í leit að æti!

Nú er hann hinsvegar í Grindavík, já lætur stjana við sig hérna og dauð sér eftir því að hafa ekki pínt sig á fætur á laugardaginn í fitumælingu með liðinu! Ábyggilega nokkrar prósentur bæst við núna yfir helgina..eeennn það kemur í ljós;)

Högni var á landsliðsæfingum núna yfir helgina, stendur sig væntanlega með prýði. Hef allavega ekki miklar áhyggjur af öðrum. Keflavík æfir stíft þessa dagana og verður það þannig næstu 3 mánuði held ég. Ég fæ frí núna í 2 vikur og byrja svo að hlaupa og lyfta (lífið er yndislegt:))! Vonast Spector svo til þess að hann fái að byrja að æfa eftir 4 til 6 vikur...gæti orðið eftir 8 vikur!

En plönin næstu dagana eru nú einföld, mæta í skólann og svo heim að horfa á tv! ahhh fínt líf..
Skelli mér austur næstu helgi, er að hugsa um að aka á Húsavík og fylgjast með 909 í brautinni í snocrossinu. Haddi kemurðu með?

En Spector kveður, 12 dögum frá 18 ára aldri......
Spector

Slæmur? Góður?

19. janúar 2007 klukkan 03:21
Þannig var mál með vexti að miðaldra maður stóð í erfiðum skilnaði við konuna sína. Voru þau stödd í dómshúsi þarsem verið var að ákveða hvort þeirra fengi nú forræði yfir syni þeirra.

Maðurinn: Herra dómari, ég tel að ekkert annað komi til greina en að ég fái forræðið.

Dómarinn: Afhverju segirðu það? Geturðu rökstudd það?

Maðurinn: Sko, þú kemur að kóksjálfssala og setur 100 kall í, út kemur kókin! Hvor á kókina? Sjálfsalinn eða þú?



jájá stelpur...kommentið;)
Spector

Ekki búið neitt...

19. janúar 2007 klukkan 02:39
Spector er kominn aftur, fór samt hvergi!

Málið er að hans stíll eru fá blogg....þar hafið þið það:)



Í dag langar Spector að ræða um mannanöfn, og ekki bara mannanöfn heldur nöfn á hinum og þessum hlutum. Fólk pælir kannski ekki mikið í þessu í daglegu amstri, en eitt dimmt janúarkvöldið datt Spector þetta í hug. Nú er komið að því að koma því í eina færslu eða svo..gerið þið svo vel!


Hafið þið pælt í nafninu ykkar?

Stelpa sem heitir Guðríður, við skiptum nafninu í tvennt og það verður að Guð ríður!
það er bara ógeðslegt! pjakk

Önnur stelpa sem heitir Sigríður, Spector vill meina að nafnið Sigríður hafi merkinguna að fróa sér, Sig ríður!
það er líka ógeðslegt! pjakk


AFHVERJU ER ALLT ÞAÐ SEM ÉG ÆTLAÐI AÐ SKRIFA DOTTIÐ ÚT ÚR HÖFÐINU Á MÉR????!?!?!?!?!?!?!?!?!?





Jæja Spector kemur bara síðar með blogg um þetta, ohhh þetta hefði getað orðið svo gott blogg!!

Annars er það að frétta af Spector að hann situr hérna slakur að fylgjast með Í sjöunda himni með Hemma Gunn, Hemmi gunn verður alltaf ferskur!
Kallinn með Ladda sjálfan í sófanum, eldferskan að geifla sig og gretta og vera endalaust fyndinn!

Svo er það bara aðgerð á hendinni næsta fimmtudag, tekið bein úr mjöðminni og skrúfað svo allt saman í hendinni. Það verður vonandi bara fínt, ágætt að klára þetta!

Annars er fótboltinn á fullu núna, búið að setja okkur í akademiuna og sitthvað fleira:)


Allt gott að frétta bara...




Spector kveður
Spector

Milli jól og nýárs hjá Spector

29. desember 2006 klukkan 00:32
Annan í jólum ákvað Spector að gera vinum sínum greiða og aka sem leið liggur niður í Eskivík á dansleik.
Hélt Spectorinn af stað með fullan bíl af fólki á ball og skemmtu allir sér konunglega!

Aðal málið var hinsvegar heimferðin, hún var ein sú viðburðaríkasta í sögu Eskivíkur!
KB nokkur hafði tekið þá ákvörðun að labba heim af balli, og var hann kominn vel á veg því við komum að honum innst í Reyðarfirði. Hafði þá kappinn rölt í um 2 og hálfan tíma, vel kenndur og nettur.
Þegar við ókum upp að KB og hugðumst taka hann uppí, þá hélt hann hinsvegar ferð sinni áfram! Í þetta skiptið með buxurnar á hælunum og blasti þá við okkur vel rakað rassgat og meira að segja nokkuð vel tanað. Sprangaði hann þarna um veginn og ákvað Spector því að aka hægt og rólega af stað aftur.
Í sömu andrá ákveður Árni nokkur Pálsson að henda sér út úr bifreiðinni og verður hann fyrir því að Spector ekur yfir fót hans um leið og hann stekkur út.
Rekur Pálsson þá upp skaðræðis vein og engist um af kvölum þarna á miðjum veginum. Með aðstoð Bæjarans og KB þá tekst Spector að draga hann út fyrir veginn og var þar hugað að sárum Pálssons.
Kom þar í ljós að hann var ekki brotinn (þrátt fyrir að Pálsson hafi ítrekað haldið því fram), ekki með slitna hásin(þó að Pálsson hafi ítrekað haldið því fram) og ekki kominn með þriðju geirvörtuna.
Eftir að hafa eytt dálitlum tíma í að sannfæra hann um að allt væri nú í góðu þá skrölti hann inn í bíl og við héldum ferð okkar áfram.

Heldur dofnaði nú yfir ferðalöngum eftir þetta og var Damien Rice settur í græjurnar og sofnuðu vel flestir og sváfu líkt og ungabörn það sem eftir lifði ferðar.


Annars er það að frétta af Spector að hann er að áramótin nálgast hjá honum og er stefnan sett á dansiball í íþróttahúsinu á Egilsstöðum.
Auk þess bíður hann spenntur eftir 4 jan, og hlakkar agalega til að fara suður aftur:)


Spector kveður....
Spector

Langar að yfirdrulla aðeins...

25. desember 2006 klukkan 08:05
Spector situr nú fyrir framan tölvuna á bindinu einu klæða, kjamsar á laufabrauði og drekkur jólaöl með!
Hann er ánægður, því aðfangadagskvöld er að verða liðið og það var gott kvöld, voða gott kvöld:)
Hann fékk pakka
Ekki marga, en nokkra
Mjög góða pakka
Má segja að það hafi verið fámennt en góðmennt
Undir trénu á Spector

Nóg af jólunum, Spector vill yfirdrulla aðeins...

Þannig er nú málum háttað að 20 ágúst 2005 lenti Spector í óhappi, braut svokallað bátsbein í úlnliðnum og kostaði það mikið vesen!(Gips í 8 vikur)
Nú jæja, eftir að hafa haft það ágætt varðandi hendina fram í apríl 2006 lendir Spector aftur í óhappi, fer á sjúkrahúsið hér á Egilsstöðum og hittir þennan ágæta lækni.
En hvað gerir læknirinn?
Jú hann segir það sem hver einasti menntaði læknir á öllu andskt Austurlandi hefði sagt "Þetta er bara smá bólga, taktu verkjastillandi í 2 vikur og þetta verður örugglega fínt" ÖRUGGLEGA? já okay  Spector trúði þessum manni enda leit hann viturlega út. Feitur, með kringlótt gleraugu og risavaxna vörtu á nefinu.







Samtalið var nokkurn vegin á þessa leið:

Spector: Sæll doktor, ég er slæmur í hendi, heldurðu að þú getir nokkuð litið á þetta?

Doktorinn: Komdu sæll Spector, já ég ætti að geta það. Komdu hérna inn á stofu til mín

Spector:(sest í sæti á stofu doktorsins og bíður átekta)

Doktorinn: Jæja, látum okkur nú sjá.(rétt lítur á hendina með öðru auga). Já þetta er svona, já hérna við skulum setja þig á bólgueyðandi og verkjastillandi í 2 vikur og þetta ætti að vera orðið gott þá. (sagði hann agalega sperrtur eftir að hafa "sjúkdómsgreint" Spector)

Spector: (hreint ekki ánægður) Nei doktor, ég mótmæli þessu! Ég er alveg handlama í hendinni, ég er sannfærður um að þetta er helvítis bátsbeinið að hrella mig einu sinni enn. Taktu mynd af þessu tappi!

Doktorinn: Nei drengur, komdu þér héðan út, Þið ungu menn komið hingað grátandi útaf minnstu hlutum. Snautaðu drengur, snautaðu!

Spector: vertu sæll doktor







Svona fór um sjóferð þá...Spector snautaði heim til sín sárkvalinn í hendi en ákvað að sýna hörku unga mannsinns og láta sem ekkert væri.
Eftir 2 vikur hafði töfluátið borið árangur, bólgan var horfin og sársaukin minni. Takið eftir MINNI!!

Svo kom sumarið og Spector spilaði tuðruspark af miklum móð, vann sína vinnu en kvaldist þó ævinlega ef hann þurfti að bera eitthvað með vinstri hendi.
Svo kom að því að Spector hélt á vit ævintýranna í Keflavík og hóf þar lyftingar með örlítið öðru sniði en hann hafði vanist í heimabæ sínum.
Eftir að hafa kvalist duglega í lyftingum þar og kvartað sáran við Guðbrandsson ákvað Spector að fara í aðra ferð á sjúkrahúsið á Egilsstöðum. Það gerði hann svo miðvikudaginn 20 desember 2006.
Þar tók yndælismanneskja á móti Spector og hlustaði gaumgæfileg á allt það sem hann hafði fram að færa varðandi hendina góðu. Endaði samtalið á því að hún sendi Spector í myndatöku.
Þar kom í ljós að bátsbeinið margumtalaða var brotið, og það mjög illa! Hafði annað brotið færst til í úlnliðnum og valdið þannig hinum mikla sársauka.
Tilkynnti yndæli kvenlæknirinn Specto að ekkert annað kæmi til greina en aðgerð á hendi. Kom þetta Spector í opna skjöldu og er hann alls ekki ánægður með fyrri skaufann sem kallar sig Doktor.

Hefði helv skaufinn tekið mynd strax hefði spector verið settur í gips í apríl 2006 og aðeins þurft að vera í 4 vikur! En þarsem aðgerð þarf að fara fram verður Spector að gangast í gegnum aðgerð og bera svo gips í 1 og hálfan mánuð og svo spelku í einhverjar vikur þar á eftir. Er það gott?

Hvað segiði kæru lesendur? Kommentiði á þetta...hafa fleiri lennt í því að fara til læknis og þeir hafa sagt "bólgueyðandi og hvíla í 2 vikur"!
Spector hefur lennt í því nokkrum sinnum en þó aldrei komið jafn illa út úr því einsog í þessu tilfelli...


Spector kveður....sár....svekktur...reiður...brotinn...en samt svo glaður:)

Spector

Jólagleðilegjóljágleðilegjól

24. desember 2006 klukkan 22:50
Specorinn ákvað að líta aðeins við hérna áður en hann skellir sér í rjúkandi heitt steypibað og þvær af sér eyrnaskítinn.

Gleðileg jól allir saman og hafið það gott yfir hátíðirnar...sjáumst svo rjúkandi fersk sem fyrst!



Spectorinnkveður
Spector

Blogg eða Færsla?

24. desember 2006 klukkan 05:24
Þarsem lang flestir félagar þínir eru nú með bloggsíðu ákvaðst tókst þú þá ákvörðun að byrja með blogg.

En um hvað munt þú blogga?

Líklegt er að bloggið þitt muni verða innihaldslaust með afbrigðum og hundleiðinlegt í lestri.

En er það ekki bara það sem bloggsamfélagið snýst um?
Að koma með lýsingur á hverjum degi fyrir sig, segja frá því hvað þú gerðir þennan daginn og hvað þú gerðir ekki?

Þú ákvaðst því að vera töff og byrja með blogg...

Þetta er blogg...

Ídagvaknaðirþúklukkan13:24ogfórstþábeint
framúrrúminuaðburstatennurnar.
Þúeyddirnokkrum
mínútumíþaðenhélst
svobeinustuleiðítölvunaþarsem
næstu3tímarnirfóruíspilunáFM.
þútapaðir!þúvarðstfúll!þúhættiríFM!
Fórstísturtuogopnaðirsvopakkaenþað
ersamtbannaðaðopnapakkaídag!gerðirþaðsamt.
Fékkstflottípakkatakk
Næstádagskráhjáþérvaraðfaraískötuveisluþarsem
ráðistvaráþigaffjölmörgumsnargeðveikumyngrikrökkumogþúlagður
íeinelti.enginnhjálpaðiþérogþúvarðstþvíað
berjastviðaðhámaíþigskötunaundirgríðarlegripressu.
Svofórstuheimogsiturhérsúraðblogga.




Bloggar seinna, gerir meira seinna, lætur Írisi gera meira seinnaSvalur


Þúkveður
Spector

Atburðarteljari

Klukkan

Gagnasafn

Könnun

Á að endurvekja hina heimsfrægu síðu www.jallajallainternational.tk?